Fritz und die Fledermäuse

...blogged wie der Wind...

10.4.06

Mamma og pabbi á morgun

Ég bið velkomin mjólk og jógúrt í ískápinn minn. Vörur sem gera mig veika. Ég bið einnig velkomin í Westland Av. fjölskylduna pressukönnu, kaffi og kex. Síðast en ekki síst bið ég velkomið fyrsta fransbrauðið sem ég hef keypt í Ameríku.

Jújú, foreldrarnir fljúga yfir hafið á morgun on maður verður að vera reddí ekki satt? Maður getur ekki látið frúna fá hjartaáfall í morgunsárið þegar hún uppgötvar að dóttir hennar fékk ekki kaffigenin. Og mér dettur ekki í hug að bjóða pabba uppá meltingaraukandi brúnt brauð.

Ég keypti marmelaði:)

0 Comments:

Post a Comment

<< Home