Fritz und die Fledermäuse

...blogged wie der Wind...

19.7.06

38°

Karen sem vinnur með mér sagði að vegna stöðu himintunglanna að þá yrði mikil hætta á tæknilegum bilunum og fleira erfiði út þetta tunglstöðuhimintungla skeið... eða hvað þetta nú heitir.

Allt bendir til þess að þetta skeið sé ekki liðið, því ég næ ekki signali á símanum mínum, er með lágt signal á tölvunni og þvotturinn minn þornaði ekki á heilum klukkutíma. Ofan á það er gangurinn allur bleikur eftir mig. Í raun eftir Alyssu en teknískt séð eftir mig.

Litli freðhausinn ákvað að þvo þvott í kvöld (freðin) á hæðinni minni því ekkert var laust hjá henni. Hún las ekki á þvottamiðana og setti tvö teppi í þvott sem betra hefði verið að handþvo. Annað bleikt of fluffy og hitt brúnt úr pjúra gerviefni. Og hún þurrkaði á hot. Bleika teppið dreifði sér í litlum hnoðrum út um þvottaherbergisgólfið á meðan hitt hreinlega leystist upp.

Þar sem stóð og bölvaði sökudólgnum fyrir að gera eina þvottavél og einn þurrkara óvirkan þá birtist þessi elska með freðubros á vör, hló mikið og sagði að allir myndu halda að þetta væri mér að kenna og hristi svo brúna teppið þannig að þvottaherbergið varð eins og eftir sandstorm og nefið á mér fylltist af nyloni. Og já þar sem ég þarf að labba ganginn en ekki taka lyftuna er bleik slóð næstum upp að dyrum hjá mér. Ég tek ekki til eftir hana.

Annars er allt gott í fréttum. Er að ganga frá flutningunum og farmiðanum heim. Býst við að koma til landsins um miðjan Ágúst og mun lifa í foreldrafaðmi þar til ég fæ íbúðina mín og næst þar á eftir búslóðina afhenta í byrjun september. Ekki biðja mig um að kaupa fleiri iPodda, komin með slæma samvisku af að hafa ferjað inn svona marga fyrir vini og ættingja... og nú þarf ég að kaupa mér nýjann því mínum var stolið. Bévítans ruslaralíður.

Og já, það er hitabylgja... 38° hámarki náð í dag. Sem fyrr lekur af mér svitinn á leið til vinnu. Kristín svitnar líka á evrivörinni þannig að ég er ekki eini perrinn í bænum.

2.7.06

Sumar og Sól

Þá er loksins komið sumar og sól. Síðustu vikurnar hafa verið mollheitar og svitalekandi en engin sól, bara þrumur eldingar og rigning eða alskýjað. Ég held því fram að Íslendingar séu með færri svitaholur en aðrir og það sé ástæðan fyrir því að ég þarf að pakka niður nokkrum tissjúum áður en ég held til vinnu. Á flestum ljósum þurrka ég svo svitann af enninu og við erum ekki að tala um nokkrar litlar sætar perlur, meira eins og fljót. Um daginn vaknaði ég eftir heila nótt án loftkælingar, gekk inn á bað, leit í spegil og öskraði þegar ég sá að ég hafði svitnað á evrivörinni! Það eru bara fimmtugir kallar með krónískt svitavandamál og konur á tíðarhvörfum sem svitna á evrivörinni.

En nú er sólin farin að fylgja með hitanum og ég er búin að setja mér það takmark að ná smá lit áður en ég flyt heim. Á laugardaginn fórum við Amber útí almenningsgarðinn hinu megin við götuna og sóluðum okkur í tvo tíma með hundinum hennar Muhky. Alyssa og litla hundsgerpið hennar, Midi, komu svo í heimsókn á teppið okkar, sem og nokkrir aðrir hundaeigendur og nokkrir pervertar eins og alltaf. Garðurinn er þekktur fyrir að vera einskonar "hook up" staður fyrir samkynhneigða sem er gott og blessað nema að útfrá því hanga nokkrir perrar og karlhórur í kringum hann.

Í dag fór ég svo með Liz, Steina og Miriam á strönd norður af Boston sem heitir Plum Island. Þegar við lögðumst niður á ströndina til að stikna byrjaði að rigna. Við lágum vongóð áfram þangað til við vorum orðin blaut inn að beini og vonlítil um að sólin myndi láta sjá sig aftur. Fórum og fengum okkur franskar og meðan á því stóð stytti upp og sólin lét sjá sig að nýju. Við lágum svo í rúma 4 tíma í sólbaði, spjölluðum og lásum og hentum okkur útí ískalt atlantshafið þegar hitinn varð of mikill. Vatnið var alltof kalt og mér tókst að láta eina ölduna skella mér kylliflatri á sandbotninn þar sem ég skrapaði mig... mjög aulalegt allt saman en gaman:)

Á morgun eru flest allir á skrifstofunni í fríi. Þjóðhátíðardagurinn þeirra er á þriðjudaginn þannig að flest allir taka mánudaginn frí og búa til 4 daga helgi. Þannig að það ætti að vera rólegt í vinnunni á morgun. Kristín kemur svo til landsins í kvöld for good og eignast ég þá nýjann nágranna í þennan eina og hálfa mánuð sem ég á eftir. Þar sem ég náði í lyklana að íbúðinni hennar mátti ég óska mér og ég óskaði mér tópasfleyg og að hún smyglaði inn einni roastbeef og remúlaði samloku... namm.

þegar ég kem heim ætla ég að borða eftirfarandi í réttri röð eins fljótt og ég get.

1. Roastbeef samloku
2. Eina með öllu
3. Hvurslags fisk